Hefur þú kynnt þér kosti við að úthýsa fjármálum fyrirtækis þíns?
Fáðu tilboð í lausn sem hentar fyrirtæki þínu.
Góð fjármálastjórnun er lykill að árangri fyrirtækja
Smart finance sérhæfir sig í að veita alhliða fjármálaþjónustu til millistórra og lítilla fyrirtækja sem kjósa að úthýsa fjármálum fyrirtækisins að öllu leyti eða að hluta.
Við veitum áreiðanlegar og reglulegar upplýsingar um fjármál fyrirtækis þíns þar sem þú færð góða yfirsýn yfir rekstur og fjárhagsstöðu. Viðskiptavinir geta valið um að fá aðgang að myndrænu gagnvirku mælaborði með fjármála og stjórnendaupplýsingar í rauntíma sem styður stjórnendur til betri ákvarðanatöku um rekstur fyrirtækisins. Auk þess er í boði að fá fjármálastjóra til leigu eða sérhæfða ráðgjöf á sviði fjármála fyrirtækja.
Stuðst er við nýjustu lausn frá Microsoft á sviði bókhalds, Business Central skýjalausn, sem hefur meðal annars í för með sér að lágmarka kostnað við rekstur á bókhaldskerfi sem skilar sér í hagstæðari kjörum til viðskiptavina Smart finance. Unnið er í pappírslausu umhverfi, Smart finance getur aðstoðað fyrirtæki við að stíga skref í átt að umhverfisvænni lausn við færslu bókhalds.
Okkar þjónusta
Viðskiptavinir geta valið um hvort þeir úthýsa fjármálum fyrirtæki síns í heild eða ákveðnum verkþáttum. Hvert fyrirtæki hefur greiðan aðgang að sínum þjónustustjóra.
Bókhalds og launavinnsla
Öll almenn bókhaldsþjónusta, launavinnsla og skil á opinberum gjöldum
Uppgjör og ársreikningsgerð
Mánaðarleg uppgjör, gerð árs- og árshlutareikninga
Stjórnendaupplýsingar
Myndrænt gagnvirkt mælaborð og rauntíma fjármálaupplýsingar
Fjármálastjóri til leigu
Stjórnun fjármála í heild sinni til styttri eða lengri tíma
Hvernig komum við á viðskiptasambandi
Við bjóðum upp á fund með þjónustustjórum Smart finance þar sem þarfir þíns fyrirtækis varðandi fjármálaþjónustu eru skilgreindar.
Í framhaldi er verðtilboð gefið í verkið.
Viðskiptastjóri skilgreindur hjá Smart finance sem heldur utan um fjármálavinnslu fyrir þitt fyrirtæki.
Traustir viðskiptavinir Smart finance